Skilmálar
Almennir skilmálar
Síðast uppfært: október 2026
1. Verð, gjöld og greiðslur
Öll verð í vefverslun Heidberg Sport eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti (VSK).
Sendingarkostnaður bætist við fyrir lok greiðslu samkvæmt verðskrá flutningsaðila, nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt. Kaup teljast staðfest þegar greiðsla hefur verið samþykkt og pöntunarstaðfesting hefur verið send.
Heidberg Sport áskilur sér rétt til að leiðrétta augljósar villur í verði, lagerstöðu eða vörulýsingum. Komi slík villa upp eftir pöntun verður haft samband og kaupanda boðið að staðfesta kaupin á réttu verði eða fá fulla endurgreiðslu.
2. Pöntun, afgreiðsla og afhending
Pantanir eru að jafnaði afgreiddar innan 1–3 virkra daga frá pöntun.
Sendingar fara fram með Dropp eða öðrum samstarfsaðilum. Afhendingartími getur verið mismunandi eftir staðsetningu og valinni sendingarleið.
Ábyrgð á vörunni færist til kaupanda við afhendingu. Tjón eða tap sem verður áður en afhending á sér stað er á ábyrgð Heidberg Sport.
3. Réttur til að falla frá samningi
Samkvæmt lögum um neytendasamninga hefur neytandi rétt til að hætta við kaup innan 14 daga frá móttöku vöru, án skýringa. Til að nýta réttinn þarf að senda skýra tilkynningu á heidbergsport@heidbergsport.is innan 14 daga frá móttöku vörunnar.
Við endurgreiðum vöruna og ódýrasta staðlaða sendingarkostnaðinn innan 14 daga frá því að varan berst okkur aftur, eða frá því að staðfesting liggur fyrir um að hún hafi verið send til baka. Kaupandi ber kostnað af endursendingu nema annað hafi verið sérstaklega tekið fram.
Neytandi ber ábyrgð á rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð umfram það sem nauðsynlegt er til að skoða og máta hana, sbr. 22. gr. laga nr. 16/2016.
4. Skiptiréttur, stærðarábyrgð og skil
Auk lögbundins réttar býður Heidberg Sport upp á 30 daga skiptirétt í aðra stærð, lit, inneign eða endurgreiðslu, og stærðarábyrgð á völdum vörum. Nánari skilyrði, þar á meðal um ástand vöru, útsöluvörur og sokka, koma fram í skiptireglum Heidberg Sport.
Vinsamlegast hafðu samband á heidbergsport@heidbergsport.is áður en vara er send til baka og láttu pöntunarnúmerið fylgja.
5. Gallaðar vörur – ábyrgð og úrræði
Reynist vara gölluð bjóðum við úrræði samkvæmt gildandi lögum, svo sem:
- viðgerð
- endurnýjun
- afslátt
- endurgreiðslu
Tilkynna skal um galla eins fljótt og auðið er eftir að hans verður vart.
6. Samskipti og kvartanir
Hafa má samband vegna pantana, skila eða kvartana á heidbergsport@heidbergsport.is eða í síma 772 0519.
Ef ekki næst að leysa úr ágreiningi með beinum samskiptum er hægt að leita til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.
7. Persónuvernd og vafrakökur
Heidberg Sport vinnur með persónuupplýsingar í samræmi við gildandi lög og persónuverndarstefnu fyrirtækisins.
Vafrakökur eru notaðar til að bæta virkni vefsíðunnar, greina notkun og tryggja góða upplifun.
8. Óviðráðanleg atvik
Heidberg Sport ber ekki ábyrgð á töfum eða vanefndum sem rekja má til atvika utan eðlilegrar stjórnunar fyrirtækisins, svo sem náttúruhamfara, verkfalla, rafmagnstruflana eða bilana hjá þjónustu- og flutningsaðilum.
9. Breytingar á skilmálum
Heidberg Sport áskilur sér rétt til að uppfæra skilmála þessa hvenær sem er. Ný útgáfa tekur gildi við birtingu á vefnum og gildir um kaup sem eiga sér stað eftir birtingu.
Um skilmálana gilda íslensk lög.
10. Um fyrirtækið
HDBRG ehf.
kt. 710326-0370
Vinastræti 6, 210 Garðabær
heidbergsport@heidbergsport.is
© 2026 Heidberg Sport