Vöruskipti og -skil
Collapsible content
Hvaða reglur gilda um skipti og skil?
Skiptiréttur
Auk lögbundins réttar býður Heidberg Sport upp á 30 daga skiptirétt í aðra stærð, lit, inneign eða endurgreiðslu. Fresturinn telst frá því að varan berst þér.
Ástand vöru
Þér er velkomið að máta vöruna eins og þú myndir gera í verslun. Smávægileg ummerki eftir mátun skipta ekki máli. Við biðjum bara um að varan hafi ekki verið notuð eða þvegin og að merkimiðarnir séu enn á.
Jólagjafir og lengdur skiptifrestur
Vörur keyptar frá 1. nóvember 2026 má skipta til 15. janúar 2027.
Réttur til að falla frá kaupum
Samkvæmt lögum um neytendasamninga getur þú hætt við kaup í netverslun innan 14 daga frá móttöku vörunnar, án skýringa. Við endurgreiðum vöruna og ódýrasta staðlaða sendingarkostnaðinn. Kaupandi greiðir kostnað af endursendingu.
Gallaðar vörur
Reynist vara gölluð bjóðum við úrræði samkvæmt gildandi lögum, svo sem viðgerð, endurnýjun, afslátt eða endurgreiðslu. Láttu okkur vita sem fyrst eftir að þú verður gallans var.
Allar reglur í heild má finna í skiptireglunum okkar.
Stærðarábyrgð Heidberg Sport
Á Andvari Polo og Andvari Prjóna Peysu skiptum við um stærð þér að kostnaðarlausu ef hún passar ekki, innan 30 daga frá því að varan berst.
- Á höfuðborgarsvæðinu sækjum við flíkina til þín og færum þér nýja stærð.
- Annars staðar á landinu greiðum við sendinguna báðar leiðir.
Fyrstu stærðarskiptin á hverri pöntun eru á okkur. Eftir þau gildir venjulegur skila- og skiptiréttur áfram.
Hvernig skila ég eða skipti vöru?
- Sendu okkur tölvupóst á heidbergsport@heidbergsport.is með pöntunarnúmeri og segðu hvort þú viljir skipta (og í hvaða stærð eða vöru), fá inneign eða endurgreitt.
- Við svörum með leiðbeiningum um hvernig varan kemst til okkar. Ef um stærðarskipti samkvæmt stærðarábyrgð er að ræða sjáum við um sendinguna.
- Þegar varan berst okkur sendum við nýju vöruna, skráum inneignina eða endurgreiðum.
Ertu á höfuðborgarsvæðinu? Þú getur líka komið til okkar í Garðabæ. Hafðu samband fyrst svo við getum tekið stærðina frá fyrir þig.
Hversu langan tíma tekur að skila?
Endursendingar með Dropp berast okkur yfirleitt innan nokkurra daga á höfuðborgarsvæðinu. Utan þess sækir Dropp pakka sjaldnar og því geta þær tekið allt að 10–14 daga.
Við endurgreiðum innan 14 daga frá því að varan berst okkur aftur.
Útsöluvörur og sokkar
Útsöluvörum er hægt að skipta í aðra stærð ef hún er til, en ekki skila gegn inneign. Lögbundinn 14 daga réttur til að falla frá kaupum gildir þó einnig um útsöluvörur sem keyptar eru í netverslun.
Af hreinlætisástæðum er ekki hægt að skila sokkum sem hafa verið notaðir eða teknir úr innsigluðum umbúðum.