Um okkur
Ef þú vilt kynnast sögunni á bak við Heidberg Sport, þá byrjar hún á bræðrum af Álftanesinu með óhóflega mikinn áhuga á golfi.
Eftir einn sérstaklega “litríkan” golfhring síðasta sumar, tókum við umræðu á leiðinni heim sem átti eftir að breyta meiru en bara skori dagsins. Við fórum að velta fyrir okkur golf tísku – og komumst fljótt að því að við söknuðum einfaldleikans og stílsins frá 9. áratugnum.
Í dag einkennist golf tískan oft af þröngum sniðum, skærum litum og munstruðum polyester fatnaði. Það getur vissulega verið skemmtilegt – en stundum er líka hægt að fara aðeins of langt.
Við erum þeirrar skoðunar að þegar þú ert að eyða nokkrum klukkutímum á golfvellinum, eigi fatnaðurinn að vinna með þér, ekki gegn þér. Náttúruleg efni anda betur, eru þægilegri – og eru einfaldlega betri kostur, bæði fyrir þig og umhverfið.
Þann dag ákváðum við að taka málið í okkar hendur.
Heidberg Sport er okkar leið til að færa golf tískuna aftur í átt að tímalausum stíl, betri efnum og meiri meðvitund. Kannski er þetta ný stefna – eða kannski bara sú gamla endurvakin.
Markmið okkar er einfalt:
Að bjóða upp á smekklegan fatnað úr náttúrulegum efnum – fyrir golfarann, fyrir leikinn og fyrir náttúruna.