Heidberg Sport Stærðarábyrgð

Það getur verið erfitt að velja stærð á netinu, sérstaklega á flík með rúmu sniði. Þess vegna bjóðum við upp á stærðarábyrgð: ef stærðin passar ekki skiptum við henni út, þér að kostnaðarlausu.

Svona virkar hún

  1. Veldu stærð með „Finna mína stærð“ á vörusíðunni, eða sendu okkur línu ef þú ert í vafa.
  2. Passi stærðin samt ekki, sendu okkur línu á heidbergsport@heidbergsport.is innan 30 daga frá því að varan berst, með pöntunarnúmeri og stærðinni sem þú vilt.
  3. Á höfuðborgarsvæðinu sækjum við flíkina til þín og færum þér nýja stærð.
  4. Annars staðar á landinu sendum við þér nýja stærð og leiðbeiningar um endursendingu. Við greiðum sendinguna báðar leiðir.

Hvaða vörur?

Stærðarábyrgðin gildir um Andvari Polo og Andvari Prjóna Peysu.

Skilmálar

  • Fyrstu stærðarskiptin á hverri pöntun eru á okkur. Eftir þau gildir venjulegur skila- og skiptiréttur áfram, og fresturinn telst frá því að nýja stærðin berst.
  • Flíkin þarf að vera ónotuð og óþvegin og merkimiðarnir enn á. Smávægileg ummerki eftir mátun skipta ekki máli.
  • Sé stærðin ekki til á lager velur þú hvort þú vilt aðra vöru, inneign eða fá endurgreitt.
  • Vörur keyptar frá 1. nóvember 2026 má skipta til 15. janúar 2027.
  • Stærðarábyrgðin bætist við lögbundinn rétt þinn og skerðir hann ekki.

Nánar um skil og skipti í skiptireglunum okkar.