Skilaréttur

Skiptiréttur og skil

Auk lögbundins réttar býður Heidberg Sport upp á 30 daga skiptirétt í aðra stærð, lit, inneign eða endurgreiðslu. Fresturinn telst frá því að varan berst þér.

Stærðarábyrgð Heidberg Sport

Passi stærðin á Andvari Polo eða Andvari Prjóna Peysu ekki skiptum við um stærð þér að kostnaðarlausu innan 30 daga frá því að varan berst.

  • Á höfuðborgarsvæðinu sækjum við flíkina til þín og færum þér nýja stærð.
  • Annars staðar á landinu greiðum við sendinguna báðar leiðir.

Fyrstu stærðarskiptin á hverri pöntun eru á okkur. Eftir stærðarskipti gildir skila- og skiptiréttur áfram, og fresturinn telst frá því að nýja stærðin berst. Sé stærðin ekki til á lager velur þú hvort þú vilt aðra vöru, inneign eða fá endurgreitt.

Vörur keyptar frá 1. nóvember 2026 má skipta til 15. janúar 2027.

Ástand vöru við skil og skipti

Þér er velkomið að máta vöruna heima eins og þú myndir gera í verslun. Smávægileg ummerki eftir mátun skipta ekki máli. Við biðjum bara um að varan hafi ekki verið notuð eða þvegin og að merkimiðarnir séu enn á.

Ef vara er greinilega notuð áskiljum við okkur rétt til að hafna skiptum, inneign eða endurgreiðslu umfram lögbundinn rétt. Við látum þig þá vita og þú getur sótt vöruna til okkar eða fengið hana senda á þinn kostnað.

Réttur til að falla frá kaupum

Samkvæmt lögum um neytendasamninga getur þú hætt við kaup í netverslun innan 14 daga frá móttöku vörunnar, án skýringa. Við endurgreiðum vöruna og ódýrasta staðlaða sendingarkostnaðinn innan 14 daga frá því að varan berst okkur aftur, eða frá því að staðfesting liggur fyrir um að hún hafi verið send. Kaupandi greiðir kostnað af endursendingu.

Verðrýrnun vegna notkunar umfram það sem þarf til að skoða og máta vöruna getur dregist frá endurgreiðslu, sbr. 22. gr. laga nr. 16/2016.

Útsöluvörur og sokkar

Útsöluvörum er hægt að skipta í aðra stærð ef hún er til, en ekki skila gegn inneign. Lögbundinn 14 daga réttur til að falla frá kaupum gildir þó einnig um útsöluvörur sem keyptar eru í netverslun.

Af hreinlætisástæðum er ekki hægt að skila sokkum sem hafa verið notaðir eða teknir úr innsigluðum umbúðum.

Svona skilar þú eða skiptir

Hafðu samband áður en þú sendir vöru til baka og láttu pöntunarnúmerið fylgja:
📧 heidbergsport@heidbergsport.is

Sendu vöruna í umbúðum sem verja hana á leiðinni.

Gallaðar vörur – ábyrgð og úrræði

Reynist vara gölluð bjóðum við úrræði samkvæmt gildandi lögum, svo sem:

  • viðgerð
  • endurnýjun
  • afslátt
  • endurgreiðslu

Tilkynna skal um galla eins fljótt og auðið er eftir að hans verður vart.